HÆTT
fyrst það skoðar engin þetta bull í mér þá nenni ég þessu ekki og er því hætt en Ólafur Vignir er enn með síður á barnalandi
Það eru komnir 5 mánuðir og 6 dagar síðan ég var uppá spítala að rembast við þetta allt....úff. En ég ætlaði nú ekki að fara að tala um það. Hann fór í sprautu og var svo duglegur, það kom smá væl þegar hann var stunginn en það var búið strax og minn farin að brosa. Hann hafði aðeins lést í þessum veikindum sínum en það var allt í lagi því hann er enn langt yfir þessari kúrfu. En já hann er bara búin að vera með eyrnabólgu og það er svo sárt fyrir hann
En hann er allveg að verða góður. Við förum suður í borgarnes á morgun bara ég og Ólafur Vignir...Jón Ingi þarf að skuttla okkur þar sem hann er ekki enn búin að skella nagladekkjunum undir minn bíl
Jón Ingi ætlar að fara að jeppast eitthvað um helgina svo við Ólafur Vignir erum bara að fara í jólagjafaleiðangur með mömmu og pabba. Ég hef nú ekki mikið verið að gera í þessari viku annað en að taka til og leika við Ólaf Vigni og svo auðvitað að skipta um bleiur og svoleiðis
En í kvöld er ég búin að vera föst í tölvunni þar sem ég fann super mario bros á netinu....hef ekki spilað hann í mörg ár en er enn bara nokkuð góð
Birkir átti leikjatölvu og þennan leik og maður var alltaf að spila. En ég hef ekki mikið að segja svo ég læt þetta gott, enda á fullu að spila mario bros
En það er komin ný könnun.

Við þurftum að láta Ylfu frá okkur því hún reyndist ekki vera barngóð og hún vildi bíta ólaf vigni og pissa á dótið hans og svo urraði hún á hann, svo við komum henni fyrir á öðru heimili áður en hún myndi meiða ólaf vigni. Svo bauðst okkur annar hundur sem er barngóður, við fórum og skoðuðum hana og féllum fyrir henni svo við tókum hana. Þetta er semsé tík af kyninu Amerískur cocker spaniel og hún heitir Rúbý, hún verður ársgömul í janúar, hún er svört með hvíta bringu. Rúbý kemur meira að segja með ættbók frá HRFÍ
En við jón ingi söknum Ylfu ekkert smá mikið og vonum bara að henni líði vel, en hún er hjá konu sem hefur átta chihuahua í mörg ár svo Ylfa hefur leikfélaga þar
Svo í vikunni er ég ekki búin að gera neitt...bara að ganga um gólf og reyna að hugga ólaf vigni, hann er búin að vera svo lítill í sér og rgætur svo sárt stundum
En það skrítna við þetta er að inná milli þess sem hann grætur þá er hann bara kátur og leikur sér og brunar um allt í göngugrindinni sinni. Honum finnst ekki gott þegar ég er að hreinsa horið úr nebbanum og gröftinn sem lekur úr augunum, þá er sko gargað. En honum finnst þetta ekki alslæmt því hann fær alveg að vera uppí og hann fær brjóstið eftir hentisemi allan sólarhringinn....það á eftir að verða erfitt að venja hann af þessu þegar hann er orðin frískur, en ég bara get ekki neitað honum um að drekka því öll þurfum við mikið að drekka þegar við erum veik og svo notar hann reyndar brjóstið til að hugga sig og ég get ekki neitað honum um það heldur því hann þarf eitthvað til að hugga sig með og ekki vill hann snuð...ég meira að segja hef svoldið til að hugga mig við þegar ég er veik og það er videospóla og nammi
En hann hefur það ekki svo hann fær bara brjóstið....svo eiga að vera alskonar mótefni fyrir börn í brjóstamjólkinni svo það er bara gott ef hann drekkur nóg. Í gærkvöldi þá var minn svo lítill að hann vildi ekki fara einn inní rúm að sofa, hann vildi sko hafa okkur hjá sér svo pabbi hans var svo góður að leyfa honum að koma fram og sofa eins og kuðungur á bringunni á pabba...það er svooo gott
En við vissum ekkert að þetta væri eyrnabólga því ég fór með hann til læknis í fyrradag og þá var bara smá roði í eyrunum en það var örugglega bara eitthvað útaf kvefi sagði Þórður en svo í gærkvöldi var ólafur vignir orðin svo slæmur og alveg óhuggandi svo ég hringdi í þórð og hann hitti okkur uppá heilsugæslu og þá var komin bullandi eyrnabólga í annað eyrað
Svo þegar við komum heim þá fékk hann bara meðalið sitt (sem honum fannst EKKI gott) og svo fékk hann stíl og við fórum bara öll að sofa og minn svaf til 20 mín yfir 7 og fékk sér að drekka þá og svo svaf hann til klukkan að verða 10 í morgun. Hann fór svo aftur að sofa áðan kl 11 og svaf til 12 og svo sofnaði hann kl hálf 2 og er að vakna núna, maður þarf svo mikinn svefn þegar maður er veikur.
Þið sem lesið þetta það væri gaman ef þið sæið ykkur það fært að kvitta þegar þið kíkið hér inn!!!![]()
Það er nú bara allt gott að frétta hjá mér, á sunnudaginn þá fórum við öll vestur í réttir og hann Ólafur Vignir fór í sínar fyrstu réttir og auðvitað var mamma með myndavélina á lofti
Við fórum svo bara hingað heim um kvöldið og það var bara notarlegt hér hjá okkur, Ólafur Vignir er svo góður að við Jón Ingi þurfum ekkert að hafa mikið fyrir honum og ef hann er eitthvað að væla þá er nóg að tala við hann og leika við hann, svo lengi sem hann er ekki svangur og er ekki komin tími á að skipta um bleiu. En ég hef svo gaman að því að leika við hann svo það er ekkert að pirra mig enda á setur maður ekki börnin sín útí horn og ætlast til að þau hafi ofanaf fyrir sér sjálf á meðan maður horfir á sjónvarpið eða er í tölvunni...ég viðurkenni það að það koma tímar sem maður vildi óska þess að maður gæti lagt hann á leikteppið og hann væri bara sáttur en það er nú frekar sjaldan og þá bara oftast þegar hann er búinn það vera extra órólegur og þá er maður alveg búinn á því en annars er þetta bara alltaf gaman.
En eins og alltaf þá tala ég ekki um annað en þennan dreng en það er jú bara vegna þess að hann er svo frábær og ég á ekkert líf fyrir utan að hugsa um hann
Í gær þá fór Jón Ingi aðeins í vinnunna og svo fórum við út að labba þegar hann kom heim og það var bara nice að komast aðeins út en svo var hann líka að vinna í dag og verður að vinna á morgun en ekki á fimmtud. og föstud.
En svo fer hann á skotvopnanámskeið á fimmtud.-föstud. og laugardagskvöldið og ég er ekki enn búin að ákveða hvað við Ólafur Vignir gerum á meðan en það verður eitthvað skemmtilegt.
Og kvitta svo
Anna
Svo ein mynd af litlum réttarkalli
Þá er bara komin miðvikudagur og Jón Ingi átti að byrja í orlofi í dag en hann fór samt að vinna
Um helgina fórum við vestur útaf því að Jón Ingi var að fara í leitir, við ætluðum bara að vera eina nótt en Jón Ingi var svo þreyttur þegar hann kom heim um kvöldið að við ákváðum að vera aðra nótt, svo ég kíkti ekkert í gillastaðarétt með Birki eins og ég ætlaði en Birkir svaf líka svo lengi að hann fór ekki heldur, hann fékk líka að vera í friði hérna heima hjá okkur um helgina. Svo á sunnudaginn þá fór Jón Ingi í réttir og ég var bara heima því það var svo vont veður að það var ekki hægt að fara með Ólaf Vigni í réttir og ekki kemst ég langt frá honum. En ég var bara heima hjá tengdó alla helgina á meðan allir hinir voru að reka rollur...
Ólafur Vignir er svo góður að hann er farin að sofa í sínu rúmi og hann sofnar svona um 10 á kvöldin vaknar svo þegar við förum að sofa og fær að drekka en svo segur hann til hálf 6 og fær að drekka og sofnar strax aftur og sefur til 10, alger engill bara....en ég er ekki viss um hvort hann verði alger engill á eftir en þá er ég að fara með hann í 3 mánaða skoðun og hann á að fá sprautu og ég held að ég hafi sjaldan verið svona stressuð![]()
Á morgun eru svo komin þrjú ár síðan við Jón Ingi byrjuðum saman...úff hvað tíminn er fljótur að líða. En ég hef ekki meira að segja í dag en allir að kvitta takk.
Anna